Þetta er ekki heimsendir

Punktar

Slappið þið af, þetta er ekki heimsendir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur að vísu samþykkt tillögur ungliða um að taka upp frelsisstefnu pírata. En aldrei hefur verið gert neitt með ályktanir landsfundar í gerðum flokksins og verður ekki heldur hér eftir. Ályktanirnar sýna, að ótti hefur heltekið hinn áður volduga her. Nú á ekki lengur að stela Landsbankanum 100%, heldur gefa pakkinu samtals 5% brauðmola af gjöf þess sjálfs. Segið svo, að brauðmolar séu útdauðir. Þó er fyndnast, að kasta á hornsteinum flokksins fyrir borð á flóttanum. Þjóðkirkju, landbúnaði, fíkniefnaleit, jafnvel sjálfri stóriðjunni. Já, þetta er lífróður.