Við höfum forsætis, sem lýgur meira en allir samanlagðir fyrirrennarar hans. Bullið, sem sullast upp úr honum, er jafnóðum kortlagt og borið saman við eldra bull hans. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er afar sár yfir þeirri aðför að tjáningarfrelsi sínu. Vill geta sagt hvaða dellu sem er, án þess að fólk geri athugasemdir við hana. Forsætis lifir í sýndarheimi, sem er allt annar en raunheimur okkar hinna. Í sæluvímu hverfur allt minni hans og hann setur hvert heimsmetið á fætur öðru. Þetta á eftir að verða skrautlegra. Áður en þjóðin fær tækifæri til að losa sig fíflið, flokk þess og ríkisstjórn þess.