Þið berið ábyrgð á Hreiðari Má

Punktar

Þið kusuð ekki Hreiðar Má Sigurðsson og Magnús Guðmundsson. Þið berið því ekki beina ábyrgð á þeim. Sú beina liggur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna og fleirum, sem sátu í stjórn Kaupþings. Sem völdu og vernduðu dólgana. En þið berið sem kjósendur ábyrgð á þeim, sem einkavinavæddu bankana og bjuggu til skort á regluverki. Trúðuð á spakmælið um að græða á daginn og grilla á kvöldin. Meirihluti ykkar kaus hrunverja til valda og þriðjungur ykkar kaus beinlínis sjálfan hrunflokkinn. Kusu á þing morfís-lið Flokksins, sem enn angar langar leiðir af spillingu og græðgi. Afneitið ekki ykkar eigin sök.