Þið eruð þrælarnir

Punktar

Þeim brá, sem hafa minni sér að gagni. Hugmyndin um sölu ríkiseigna til að kosta hátæknispítala er ekki ný. Davíð Oddsson einkavinavæddi Landsímann til að byggja spítalann. Ekki kom króna út úr þeirri einkavinavæðingu frekar en annarri og ekki ein skóflustunga að spítala. Bankarnir voru einkavinavæddir um svipað leyti, með heimsfrægum afleiðingum. Fer ekki hrollur um fólk, þegar bófar Flokksins og Framsóknar tala enn um einkavæðingu, núna Landsvirkjunar? Aftur er spítalinn hafður að skálkaskjóli, svo vissir eru bófarnir, að fólk hafi ekki minni sér að gagni. Áttið ykkur á, að þið eruð þrælar bófaflokka.