Þið farið öll á hausinn

Punktar

Dæmið gengur ekki einu sinni upp hjá venjulegu fólki. Því, sem hefur ekki misst og mun ekki missa vinnu. Því, sem skuldar ekki í erlendri mynt. Því, sem ekki er í neinum vanskilum. Verð á mat er rétt að byrja að hækka. Fyrir rest verður það orðið helmingi hærra en það var í sumar. Matarreikningur fjögurra manna fjölskyldu hækkar um tugi þúsunda króna. Fólk getur ekki staðið undir verðbólgunni, þótt það leggi bílnum, segi upp fjölmiðlum og hætti að fara í utanlandsferðir. Það er ekki aðeins viðkvæmt jaðarfólk, sem fer á hausinn í vetur. Heldur allur almenningur eins og hann leggur sig.