Fjárlagafrumvarpið er hneyksli. Gagnrýni Hreyfingarinnar er réttmæt. Skorið er til beins í heilsu, velferð og menntun. Á sama tíma er úthlutað hundruðum milljóna til flokkanna og gæluverkefna þingmanna. Atriði, sem ættu að vera málefnaleg, fá úthlutun eftir kjördæmum. Einkum eru þingmenn landsbyggðar iðnir við gróft kjördæmapot. Þannig er fjárveitingum í fornleifagröft og húsafriðun skipt á kjördæmi. sem er út í hött. Í stóru og smáu eru þingmenn fjórflokksins gæzlumenn sérhagsmuna, einkum þingmenn landsbyggðarinnar. Upp til hópa eru þingmenn bara svín við trog. Mokum öllu þessu ógeði á haugana.