Þjóðarböl góðborgara

Punktar

Hér er mikið af góðborgurum. Einkum þeir, sem hafa fengið þægilega innivinnu út á pólitík eða undirgefni við athafnamann. Halda eins og Altúnga, að allt sé eins og bezt verði á kosið. Vilja alls ekki, að bátnum sé ruggað. Telja ríkisstjórnir góðar, að minnsta kosti ef Sjálfstæðisflokkurinn er í brúnni.  Oft eru þeir kirkjuræknir. Snúast gegn uppljóstrunum um glæpi, til dæmis um kynferðisbrot. Afneita staðreyndum, kenna sögumanni um ótíðindi og heimta þöggun. Flótti brast í lið góðborgara í síðustu alþingiskosningum. Eru nú sagðir munu snúa aftur í faðm Flokksins í vor. Góðborgararnir eru þjóðarböl.