Þjóðrembingar froðufella

Punktar

Þjóðrembingar láta ekki að sér hæða. Þingmenn eru bálreiðir út af fundi í Evrópusambandinu, þar sem Ísland kann að verða á dagskrá. Árni Johnsen hefur forustu fyrir þjóðrembingum, enda sannheilagur. Hann segir þetta mál vera argasta dónaskap og smekkleysu á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Ég sé ekki, að neinum samtökum komi þjóðhátíðardagar neitt við. En það er ekki von, að Íslendingum farnist vel, þegar þjóðremban er komin á stig Árna Johnsen. En það er gamla sagan, skúrkarnir elska að vefja sig fánanum, kyssa biblíuna og kyrja þjóðsönginn. Slíkt felur það, sem þeir eru að stússa.