Þjóðrembdi flokkurinn Front National varð stærsti flokkur Frakklands um helgina. Þjóðremban er að brjóta 30% múrinn í fyrsta lýðræðisríki Evrópu. Svipað ferli er um alla Evrópu. Landhlaup og terror múslima gerbreytir viðhorfum fólks til fjölmenningar. Marine le Pen flokksformaður segir þá eina geta orðið franskir borgarar, sem tali frönsku og hugsi frönsku. Sú verður útkoman í álfunni, að skrúfað verður fyrir þá, sem vilja ekki líta á sig sem heimamenn. Á bara við um múslima. Hafa þá sérstöðu að telja sig múslima fremur en borgara. Flytja með sér miðaldir. Menningarbræðingur hefur orðið undir í baráttunni um hugi fólks.