Þögult krónuvinafélag

Punktar

Talsmenn krónunnar hafa hljóðnað. Tala ekki lengur um, að fullveldið muni tapast með evrunni, því að það virðist þegar laskað. Tala ekki lengur um bankahrun með evrunni, því að það hrundi hjá krónunni. Tala ekki lengur um atvinnuleysi með evrunni, því að það blasir við hjá krónunni. Tala ekki lengur um yfirvofandi hrinu gjaldþrota með evrunni, því að hún er byrjuð hjá krónunni. Tala ekki lengur um hrunið traust Íslands með evrunni, því að það er þegar hrunið hjá krónunni. Allar illspár út af evrunni hafa komið fram hjá krónunni. Krónuvinafélagið hefur týnzt í bloggi og blaðagreinum.