Nokkrir bloggarar sjá ofsjónum yfir, að Þráinn Bertelsson verði á tvöföldu kaupi sem þingmaður. Hann eigi að afsala sér heiðurslaunum listamanna meðan hann sé þingmaður. Heiðurslaun eru hins vegar ekki starfslaun. Þau eru ekki veitt til að efla listamenn til dáða. Eru veitt í þakklætisskyni fyrir löngu áður unnin störf. Þráinn hefur fyrir löngu unnið fyrir heiðurslaunum, er ekki að vinna fyrir þeim núna. Þess vegna er hann ekki í tvöfaldri vinnu sem listamaður og þingmaður. Ég reikna samt ekki með að öfundsjúkir bloggarar taki mark á þessari eða annarri röksemdafærslu. Þeim er bara illa við Þráin.