Þriðja flokks svitagaurar

Punktar

Birgir Ármannsson kófsvitnaði í sjónvarpinu í gær, þegar hann flutti nýjustu orðhenglana um svik landsfeðranna um þjóðaratkvæðið. Bjarni Benediktsson var orðinn fýldur í sjónvarpi síðustu dagana og ákvað svo í gær að hætta að koma fram í sjónvarpi. Allir þekkja dapurleg afdrif SDG í sjónvarpinu fyrir viku. Tímarnir eru breyttir. Ekki er lengur hægt að flytja langvinnt þvaður alveg merkingarlaust. Og ekki er alltaf hægt að svara spurningum út í hött og fara að tala um annað og ekkert. Vaktin á vefnum sefur aldrei. Innan stundar er búið að tæta sundur málflutning þriðja flokks pólitíkusa, sem plaga okkur.