Spennandi þríkantur í Kópavogi eru umboðsmenn óranna. Einn skipuleggur kynóra, annar trúaróra og sá þriðji peningaóra. Þeir tengjast á ýmsa vegu. Umbar kynóra og trúaróra fóru saman í stólpípur hjá Jónínu Benediktsdóttur í Póllandi. Umsjónarmaður trúaróra reis upp á fundi Flokksins í Kópavogi í gær og varði umsjónarmann peningaæóra gegn ofsóknum öfundsjúkra kommúnista í Samfylkingunni. Dótturfélag peningaóranna kemur útsvarsgreiðendum ekki við. Menn eiga að standa með fjölskyldum sínum, sagði umboðsmaður trúaróranna.