Þrír siðlausir flokkar

Punktar

Ég vil sérstaklega vara við þremur siðlausum stjórnmálaflokkum, sem bjóða okkur mikinn skuldaafslátt á kostnað barna okkar og barnabarna. Þetta eru Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Borgarahreyfingin. Sumir nota þeir sjónhverfingar til að dylja, að einhver þarf einhvern tíma að borga fyrir góðsemi flokkanna. Það er svívirðileg framkoma stjórnmálaflokka að vilja leysa vanda næstu missera með því að varpa honum yfir á börn okkar og barnabörn. Einkum þrír stjórnmálaflokkar stunda þessi siðlausu og billegu yfirboð, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Borgarahreyfingin.