Þú borgar skuldir óreiðumanna

Punktar

Þú ert að borga skuldir óreiðumanna. Og börnin þín munu gera það eftir þinn dag. Sem skattgreiðendur og sem notendur minnkandi velferðar. Kemur IceSave tæpast við, enda er það skiptimynt í samanburði við aðra óreiðu í landinu. Gjaldþrot Seðlabankans kostar 270 milljarða. Gjaldþrot bankanna kostar 190 milljarða. Allt ákveðið í tíð Geirs Haarde og Davíðs Oddssonar. Síðan hefur verið bætt við gjaldþroti Íbúðalánasjóðs, ýmissa minni banka og sparisjóða, svo og tryggingafélags, samtals um 90 milljarðar. Samanlögð óreiða landsins nemur 550 milljörðum. En við förum hins vegar nánast frítt út úr IceSave.