Nú þykjast allir vera sauðir. Steingrímur Wernersson byrjaði og sagði Karl bróður sinn vera siðblindingja, sem valtaði yfir sig fáráðlinginn. Jón Ásgeir og klíkan hans kann ekki lengur neina ensku og á alltaf annars staðar heima, þegar dómstólar elta hana. Geir Haarde segir: “Ég hef ekki átt því að venjast að mér sé vísvitandi sagt ósatt um mikilvæg mál” Hann trúði öllum og sóttist jafnvel eftir samtölum við Björgólf fjárglæframann. Björn Leifsson segir bankann sinn hafi platað sig út í fjárglæfrana. Sú verður helzta vörn skúrkanna, að bankinn hafi platað þá. Þeir þykjast vera fáráðlingar.