Ýmsir hrósa Lilju Mósesdóttur fyrir þýzku leiðina, þótt þeir hafi ekki áður sýnt dálæti á Þýzkalandi. Telja kenntöluflakk húsum hæft, af því að það sé þýzka leiðin. Ef menn eru svona hrifnir af þýzkum leiðum, hafa þeir gott af heyra, að Þjóðverjar eru hættir að nota markið sitt. Hvort sem það heitir Ríkismark, Rentumark eða Þýzkumark. Þeir nota bara evru og græða meira en nokkru sinni fyrr. Allt Evrópusambandið hangir á Þýzkalandi sem eimvagni Evrópu. Við hefðum áreiðanlega gott af að taka okkur til fyrirmyndar tök Þjóðverja á fjármálum og evru. Þau felast í flestu öðru en kennitöluflakki.