Ég treysti Mats Josefsson til að meta kreppuna rétt. Hann er útlendingur, ekki einn af þessum andskotans Íslendingum með annarlega hagsmuni í hverjum vasa. Josefsson segir, að ríkisvaldið verði að byrja að segja bankastjórum og bankaráðum fyrir verkum. Hætta að láta þau komast upp með að hunza gefin fyrirmæli, samanber Ásmund Stefánsson. Heyrið það Framsókn, hættið að styðja Davíð í laumi! Ég trúi Josefsson, þegar hann segir, að bankastjórarnir beri ábyrgð á hruninu. Þegar hann segir þá nýju ekki mega haga sér eins og ríki í ríkinu. Nýju bankastjórarnir virðast ekki átta sig á, að ríkið á bankana.