Truflaðist í felum

Punktar

Maureen Dowd segir í New York Times, að George Bush eldri og hirð hans séu gáttaðir á undarlegum breytingum, sem hafi orðið á George W. Bush yngra undir verndarvæng Dick Cheney varaforseta, sem átti að vera yfirvegaður lærifaðir hans í forsetaembætti. Þeir velti meðal annars fyrir sér, hvort Cheney hafi truflazt í kollinum af bókalestri í neðanjarðarbyrgi, sem hann faldi sig í fyrstu vikurnar eftir árásina á World Trade Center. Bush yngri fylgist ekki með fréttum, en byggir viðhorf sín á upplýsingum frá róttæklingum á borð við hinn endurfædda Cheney. Dowd segir, að kominn sé tími til að Bush eldri fari að sinna uppeldi Bush yngra.