Umferðarhornið

Punktar

Reykjavíkurlistinn hefur átt ótrúlega erfitt með að ná áttum í skipulagsmálum. Í dagblöðunum birtist nokkrum sinnum í viku gagnrýni á skipulagið, einkum færslu Hringbrautar suður fyrir Umferðarmiðstöð. Minna er talað um skilningsleysi Reykjavíkurlistans á mesta umferðarhorni borgarinnar. … Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar er mesta umferðarhorn landsins. Byggðar eru umferðarbrýr út um allar trissur á Reykjavíkursvæðinu og ráðgerð milljarðaútgjöld í braut út um sund, nes og eyjar, en Reykjavíkurlistinn þvælist gegn mislægum gatnamótum á mesta umferðarhorninu. …