Annar hver þingmaður á þessu þingi berst fyrir bættum hag þeirra, sem bezt hafa það. Hverjum dettur í hug, að næst berjist þeir fyrir þá verst settu? Annar hver þingmaður á þessu þingi berst gegn stjórnarskrá, sem skerðir völd valdamanna. Hverjum dettur í hug, að næst berjist þeir fyrir þá valdalausu? Annar hver þingmaður á þessu þingi berst gegn hverju einasta máli, sem til framfara horfir. Hverjum dettur í hug að næst berjist þeir fyrir framförum? Svarið er einfalt. Meirihluta kjósenda, sem er svoleiðis úti að aka, að hann vill fela þrautþjálfuðum bófaflokkum stjórn landsins á næsta kjörtímabili.