Með sátt um IceSave rennur Sjálfstæðisflokkurinn af jaðri inn á miðju í pólitík. Eftir er tryllti jaðarinn með brennivíns-fjölmiðlana og ofstækis-fjölmiðlana. Vinstri grænir hafa líka sinn jaðar, sem ekki fellst á neitt, sem forustan býður. Þessar tvær gerðir af jaðri eru heimilislausar að sinni. En Framsóknarflokkurinn býður jaðar á miðjunni. Að stjórn Sigmundar Davíðs tekur flokkurinn jafnan þjóðrembda afstöðu, í IceSave og EBE. Þar er fínt heimili fyrir alla jaðra í pólitíkinni. Davíð og Hannes, Ingvi Hrafn og Skafti geta farið þangað eins og Atli og Ásmundur Einar. Jón og Ögmundur.