Við skulum hætta að skrá krónugengið vitlaust. Við skulum lofa markaðinum að verðmeta krónuna. Fyrir alla muni megum við ekki setja neina evru í að halda uppi krónugengi. Slíkt væri hrein verðmætabrennsla. Engin ástæða er til að láta þjóðina halda, að innfluttar vörur séu ódýrar. Þær eiga að kosta það, sem þær kosta. Eigum að keyra niður innflutning með frjálsri krónu. Einkum skulum við hafna lánum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Norðurlandanna. Þeim er bara ætlað að verja gjaldmiðilinn. Höfum ekki ráð á hagfræðirugli. Afþökkum lán, aftengjum vísitölu, afnemum gjaldeyrishöft, látum krónugengið gossa.