Búinn að týna Lukku-Láka bókinni um hundinn Vafning, sem tók Dalton-bræður í fóstur, það er Sjálfstæðisflokkinn. Man söguna óglöggt. Þar var söguhetjan góður hundur, sem sá alltaf það jákvæða í lífinu. Þegar löggan bjargaði Óla Birni undan skrílnum, sagði Vafningur: Þetta eru æstir aðdáendur hans og Sjálfstæðisflokksins. Þegar skríllinn elti Vafning með hornaboltakylfum, sagði Vafningur: Þetta eru æstir aðdáendur mínir, sem fagna mér og vilja, að ég verði tekin í ríkisstjórnina og verði forsætis. Mig minnir, að í sögunni hafi Vafningur lifað vel og lengi úti í mýri allt til enda veraldarinnar.