Vanheilög þrenning Guðlaugs

Punktar

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur sagt okkur frá nokkrum styrktaraðilum. Lætur þó hjá líða að segja okkur frá þeim, sem gáfu honum níu milljónir króna. Þeir, sem þola dagsljósið, eru vanheilög þrenning Jóns Ásgeirs, Pálma í Fons og Hannesar Smárasonar. Guðlaugur bætist því í hóp margra óhreinna þingmanna Sjálfstæðisflokksins á framfæri vafasamra gaura. Hverjir skyldu það vera, sem eru verri en þessir þrír? Upp á níu milljónir. Birtu nöfnin sýna, að tímabært er fyrir Guðlaug að feta í kjölfar Steinunnar Valdísar. Hann á nú þegar að segja af sér. Hefði raunar átt að vera búinn að því á undan henni.