Veftröll á fésbókarvegg

Punktar

Á vegginn hjá mér á fésbók koma fimm veftröll, er hrópa og færa engin rök fyrir neinu. Áhugamálin eru tvö, ofsahatur á flóttamönnum og ofurást á Ísrael. Tveir fyrirferðamestu hópar veftrölla á íslandi eru þarna á ferð, að sumu leyti sama fólkið. Oft er það tengt ofsatrúarsöfnuðum, sem í sinn hóp ræða meintar spár biblíunnar um yfirvofandi heimsendi. Í heild á fésbók eru þetta nokkrir tugir manna, sem fáir hætta sér út í hina almennu umræðu. Þeir halda sig sér á parti og porra hver annan upp. Við aðra er hægt að ræða, þótt menn séu ósammála. Í þeim tilvikum eru notuð rök og tengt í góðar heimildir, en ekki falsanavefi.