Vegur varðaður spakmælum

Punktar

Vegur Íslands út í hrunið og úr hruninu er varðaður spakmælum. Pétur Blöndal sagði: “Fé án hirðis”. Átti við, að henda ætti sparisjóðunum á græðgisbálið. Hannes Hólmsteinn sagði: “Græðgi er góð”. Átti við einkavinavæðingu Davíðs á bönkunum og gjaldþrot Seðlabankans. Geir Haarde sagði: “Við skulum ekki persónugera þetta”. Átti við, að þjóðin mætti ekki skamma Davíð og sig og Bjarna Ben fyrir að valda hruni þjóðfélagsins. Næst sagði Geir: “Guð blessi Ísland”. Og hrökklaðist síðan frá völdum. Bjarni Benediktsson sagði: “Ég er eins og skyr”. Varð því formaður brennuvarga og sagði: “Við mótmælum allir”.