Veitingaverð

Punktar

Tímaritið New York (www.newyorkmetro.com) telur hundrað dæmi um, að beztu veitingahús New York bjóði þríréttað í hádeginu á 1500 krónur og á kvöldin á 3000 krónur, með sköttum og þjórfé. Ef við teljum, að hráefni í mat sé tvöfalt dýrara í Reykjavík en í New York og húsin leggi ekki álag á muninn, ættu tölurnar að nema 2000 krónum í hádeginu og 4000 krónur á kvöldin hér í borg. Lakari og íburðarminni hús ættu að taka frá 1000 krónum í hádeginu upp í 2000 krónur á kvöldin. Veitingaverð er hærra hér á landi, sem bendir til, að fleira ami að því en hátt matarverð og vaskur. (DV)