Velferðin framkvæmd

Punktar

Við þurfum að snúa við auknum stéttamun. Þurfum aftur auðlegðarskattinn, sem var lagður niður. Þurfum aukna auðlindarentu af öllum auðlindum lands og sjávar, af aflakvóta, af ferðaþjónustu og af orkufrekum iðnaði. Þurfum að færa þetta fé til almennings. Með því að hafa heilsuþjónustu og menntaþjónustu ókeypis. Með því að hækka ellilaun, örorkulaun og veikindalaun. Með því að gera ungu fólki kleift að eignast ódýrar smáíbúðir. Þurfum að stöðva skattsvindl, hækkun í hafi og falið þýfi í skattaskjóli aflandseyja. Máske þurfum við að færa yfir hundrað milljarða á ári með slíkum aðferðum samanlögðum. Og helzt þurfum við að eyða bófaflokknum.