Verið hrædd, mjög hrædd

Punktar

Margir þeir, sem kusu Framsókn um helgina, hafa ekki hugmynd um, að þeir eru rasistar. Þetta er gott fólk, snyrtilega til fara. Vill fá frið í raðhúsum sínum eða hæðaríbúðum. Ekki ríkt fólk, hefur séð hraðar breytingar, sem ógna öryggi þess. Hirðir ungt fólk, sem kann á tölvur, atvinnu þess? Hækka vextir? Ásælast kontóristar í Evrópu auðlindirnar? Éta hælisleitendur upp velferðina? Munu múslimar drepa stúlkurnar? Óttinn við hið ókunna leiðir ómeðvitað til haturs. Samvizkulausir pólitíkusar og spunakarlar spila á ótta Biedarmanns. Koma eins og brennuvargarnir og segja hinum ófróðu: Verið hrædd, mjög hrædd.