Ég byggi upp varnarlínu gegn innrásinni, sem kemur eftir mánuð. Beiti tækni nútímans, traktor, fjórhjóli, sleggju, naglbít, neti og vír. Laga girðingar um hálsa og urðir. Allt á að vera tilbúið fyrir innrásina. Nútildags er ræktað undan rollum, sem fara gegnum hvað sem er og þjálfa lömbin sín til hins sama. Heilu flokkarnir kasta sér á gaddavír, troðast gegnum netmöskva, synda yfir ár, stökkva yfir ristar. Sjálfsmorðssveitir eru sérþjálfaðar í að komast í kvistinn innan girðingar. Síðan sauðfé var aflagt á Kaldbak fyrir fimm árum, gægist kvisturinn alls staðar upp og brjálar rollurnar.