Við erum að losna við verstu gaura gamla Íslands á þessari öld. Ólafur Ragnar hættur og Davíð Oddsson fær ráðningu við hæfi. Sigmundur Davíð er á útleið og allur hans armi flokkur. Geir H. Haarde hangir í óverðskulduðu fínimannsstarfi. Hanna Birna öllum gleymd. Kristinn L. Möller og Ögmundur Jónasson láta sig hverfa, en Steingrímur J. Sigfússon ætti að læra af þeim. Núllin og nixin hjá Framsókn og Sjálfstæðis hætta flest eða falla. Í staðinn verður pláss fyrir fólk nýja Íslands, sem væntanlega innleiðir lýðræði og heiðarleika í pólitík. Við eigum enn eftir að losna við þjóf-ræðið og aflendinga stóra bófaflokksins.