Við erum terroristar

Punktar

Svo sannarlega eru Íslendingar hryðjuverkamenn. Ollu umheiminum tjóni upp á þúsundir milljarða í hruninu. Engu máli skiptir, þótt skrifaðar verði margar skýrslur um, að Bretar skuldi okkur fimm milljarða vegna hryðjuverkalaga. Í raun skuldum við samt umheiminum þúsundir milljarða vegna hryðjuverka okkar manna. Hryðjuverkin voru framin í andrúmslofti löglausra fjármála, sem Davíð og Geir höfðu efnt til. Sjóræningjarnir voru eigendur banka og bankastjórar, sem allir voru gallharðir kjósendur Sjálfstæðisflokksins. Okkur sæmir illa að ýfa upp þennan skandal og allra sízt sækjum við gull í greipar Breta.