Viðskiptasiðfræðingurinn

Punktar

Í framboði til formanns stéttarfélagsins VR er einn titlaður siðfræðingur. Er þó frægari fyrir aðild að sérstæðri smölun á aðalfund sjálfstæðismanna á Ísafirði. Þá var keypt flugvél undir hóp meðvitundarlítilla atkvæðavéla úr Reykjavík. Stefán Einar Stefánsson er samt titlaður viðskiptasiðfræðingur. Tók að sér að friða átök milli manna í stjórn VR. Lausn hans felst í að bjóða sig fram til formanns. Ekki veit ég neitt gott eða vont um aðra frambjóðendur. En seint kysi ég mann, sem í senn er frægur af aðild að skrautlegum innanflokksátökum og titlar sig jafnframt viðskiptasiðfræðing.