Vigdís er roggin

Punktar

Vel má vera, að Vigdís Hauksdóttir tali betri íslenzku en margur annar, eins og hún orðar það. Þjóðin er svo sem ekki upp á marga fiska í þessu fremur en öðru. Hitt er þó ljóst af dæmum, að 62 þingmenn tala skárri íslenzku en hún. Frá henni hefur komið endalaus röð af ambögum í orðum og málsgreinum, sem illmennin skrá samvizkusamlega. Það kallar hún einelti, sem hún mætir með æðruleysi, því hún veit betur. Þótt þetta sé þekktasti vandi hennar, er þó verra, hversu illvíg hún er. Gegn útlendingum og útlandinu yfirleitt svo og kontóristum, er hún vill beita pólitísku gerræði; brottrekstri og þvingunum.