Vigdís fríkar út

Punktar

Vigdís Hauksdóttir stígur í Fréttablaðinu inn í vænisýki á alvarlegu stigi. Sér Svandísi Svavarsdóttur sem könguló í neti „grímulauss hulduhers“ álitsgjafa um ofsóknir gegn Framsókn. Skilur ekki reiði almennings eftir myndbirtingar af dýraníði í fjölmiðlum og kannast ekki við neitt dýraníð. Sakar ellilífeyrisþega um að hafa það gott og segir neikvæða umræðu vera skaðlega. Ítrekar illræmda fullyrðingu sína um örorku sem yfirvarp bótasvika. Ekki amalegt að hafa svona valkyrju í boði, þegar Eygló víkur sæti til að læra samlagningu á prósentum. Þetta er liðið, sem siðblindi digurbarkinn notar til að stjórna eymdarþjóðinni.