Vil sjá nýja samninginn sjálfan

Punktar

Ber svo lítið traust til stjórnarinnar, að ég þori ekki að tjá mig um nýja IceSave samninginn. Fyrst vil ég sjá hann sjálfan, ekki byggja á lýsingum stjórnvalda á honum. Eitt þori ég þó að segja: Ef Ögmundur Jónasson fellst á hann, samþykki ég hann líka. Öðrum pólitíkusum, sem ég man eftir, treysti ég ekki. Pólitíkusar eru til þess að treysta þeim, þannig getur maður sofið á nóttunni. Því miður komast íslenzkir pólitíkusar upp með að rugla út í eitt. Þar ber hæst þá framsóknarfélaga Sigmund Davíð og Höskuld Þórhallsson. Aðrir gleyma fortíð sinni, einkum Davíð og aðrir oddvitar Sjálfstæðisflokksins.