Vinstri græn spilling

Punktar

Látið ekki blekkjast af vinstri grænum. Þeir eiga sinn þátt í spillingunni. Þeir skipuðu þrjú gæludýr sín í bankaráð nýju bankanna. Þeir skipuðu engan þann, sem hefur talað viturlega um bankamál síðasta mánuð, síðasta ár. Þeir drógu bara upp sæta og hlýðna flokksmenn. Gleymið því ekki, að þeir hafa árum saman talað gegn Evrópusambandi og evru. Hvort tveggja hefði hindrað hrunið, sem nú blasir við. Vinstri grænir eru samábyrgir í hruninu og þeir eru samábyrgir í flokkspólitískri raðnauðgun á bankaráðum nýju bankanna.