Vita vonlaus þjóð

Punktar

Íslendingar eru vonlausir. Seðlabankastjóri, útrásargreifar, bankastjórar, ráðherrar og fjármálaeftirlit selja ykkur í ánauð. Þið rekið ekki pakkið frá völdum, heldur farið að skúra undir stjórn þess. Fólk verður að standa saman, segja leiðarar. Eyðum ekki tíma í blammeringar, segir gott fólk. Við eigum að sætta okkur áfram við snarvitlausa frjálshyggju. Sætta okkur við, að brennuvargar séu í brunaliðinu og að bankastjórar séu áfram ráðgjafar. Að ráðherrar fái syndauppgjöf fyrir kjafthátt í símanum til Bretlands. Að heyrnardaufur æsingamaður í Seðlabankanum haldi velli. Svei ykkur öllum.