Voða vondir við Björn

Punktar

Voða vondir við Björn
urðulegt er, hversu vondir menn eru við Björn Bjarnason stríðsráðherra. Fjöldi manns gerir í að fara rangt með staðreyndir og bera rangar sakir upp á ráðherrann. Fremstir fara þar ég og tveir borgarstjórar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dagur Eggertsson. Þeir bera upp á Björn, að þeir hafi verið í samskiptum við hann um miðbæjargæzlu allt frá árinu 2003. Þeir hafi setið í samstarfsnefndum ríkis og borgar um málið. Tveir starfshópar hafi verið skipaðir, annar 2003 og hinn 2006. Björn hafi ekki sinnt niðurstöðunum. En hann segist blásaklaus, enginn hafi nokkru sinni talað við sig um neitt.