Volgubakkar og Rínarbakkar

Punktar

Þjóðrembingar, ábyrgðarleysingjar og siðleysingjar eru daufir í dálkinn. Virðast eiga erfitt með að fóta sig á lágu fylgi í könnunum. Þeir komast fyrst í gang aftur, þegar þeir ákveða að fara að dæmi Sjálfstæðisflokksins í gamla daga. Þegar honum varð orða vant í átökum innanlands, fór hann að tala um Sovétríkin. Það hét að færa baráttuna austur á Volgubakka. Nei-menn munu hætta að tala um IceSave. Fara í staðinn að tala um Evrópusambandið. Reyna að koma því inn hjá heimskingjum, að þjóðaratkvæðið í vor fjalli um aðild að Evrópusambandinu. Þar er Volgubakki nútímans, hinn trausti óvinur á veggnum.